27. mars 2011

Krókódílahekl - leiðbeiningar í myndum

Ég ákvað að útbúa leiðbeiningar fyrir ömmu mína sem er orðin svolítið gömul og gleymin. Hún var svo svakalega hrifin af sjalinu sem ég er að gera og vildi endilega læra þetta hjá mér. Ég var búin að sýna henni í tvö skipti hvernig átti að gera þetta og ákvað því að búa til leiðbeiningar með myndum svo að hún gæti líka haft það þegar ég er ekki hjá henni. Þar sem ég var hvort sem er að leggja vinnu í þetta fyrir ömmu þá ákvað ég að leyfa fleirum að njóta og vona að þetta hjálpi einhverjum :) Ég lærði þetta með því að skoða myndbönd en mér fannst vanta að einhver sýndi hvernig maður byrjar á að gera sjal. Þannig að ég ætla að sýna í myndum og texta hvernig ég geri þetta :)

Ef þið ætlið að hekla sjal úr þessu þá skiptir öllu að vera með fínt garn þar sem þetta er mjög þykkt :) Ég er sjálf að hekla sjal úr kunstgarni og nota 5,0 mm heklunál og myndi alls ekki vilja hafa það þykkara :)

Mynd 1

Mynd 1: Gerið 4 loftlykkjur (ll) en þrjár af þeim telst sem stuðull. Gerið stuðull (st) í næstu lykkju. Snúið við með 1 ll.


Mynd 2

Mynd 2: Gerið 5 st utan um stuðullinn og er það gert með því að slá bandinu upp á eins og alltaf þegar maður gerir stuðla en svo stingur maður undir og sækir bandið í staðinn fyrir að stinga ofan í. Laufin eru í rauninni hekluð undir þannig að rangan á stuðlunum í laufunum er á réttunni. Þetta er það sem virkar svo öfugt á mann þegar maður byrjar en svo er þetta ekkert mál þegar maður fattar þetta :)


Mynd 3

Mynd 3: Komnir 5 st utan um stuðulinn í byrjun. Gerið 1 ll og 5 st hinum meginn. Laufin eru sem sagt gerð þannig: 5 st, 1 ll, 5 st


Mynd 4

Mynd 4: Fyrsta laufið tilbúið og þá eru gerðar 3 ll og 1 st í sömu lykkjuna.


Mynd 5

Mynd 5: Svo eru gerðar 2 ll og 2 st ofan í stóra gatið, 2 ll, 2 st í endann.


Mynd 6

Mynd 6: Þá lítur þetta svona út... einskonar brú. Snúið við með 1 ll.


Mynd 7

Mynd 7: 5 st gerðir utan um stuðulinn í umferðinni á undan. Muna að fara alltaf undir. 1 ll.


Mynd 8

Mynd 8: 5 st utan um stuðul nr. 2 í umferðinni á undan.


Mynd 9

Mynd 9: Mér finnst gott að bretta upp á stykkið þegar ég er að hekla svona undir.


Mynd 10

Mynd 10: Komnir 5 st. Leggið laufið niður. Svo að þið sjáið hvernig þetta lítur út.


Mynd 11

Mynd 11: Hér sjáið þið laufið. Þá er að gera næsta lauf en þið gerið það ekki í miðjuna þar sem þið viljið láta laufin skarast en ekki vera ofan á hvort öðru. Þið hoppið sem sagt yfir þessa brú og farið í endabrúnna.


Mynd 12

Mynd 12: 5 st og 1 ll


Mynd 13

Mynd 13: Leggið laufið niður og gerið 5 st utan um endastuðullinn. 


Mynd 14

Mynd 14: Þegar komnir eru 5 st þá þarf að gera brúnna. Gerið 2 st (3 ll fyrsti st).


Mynd 15

Mynd 15: Brúin er gerð *2 st, 2 ll* endið á 2 st. Stuðlarnir eru gerðir í endana, ofan í stóru götin og líka á milli stuðlana sem ekki var heklað utan um í umferðinni á undan.


Mynd 16

Mynd 16: Hér eru brýrnar komnar... lítur nú reyndar frekar út sem stigi :) Snúið við með 1 ll. Því næst gerið þið laufin eins og sýnt er frá Mynd nr. 2 hér fyrir ofan.


Ég vona að þessar leiðbeiningar séu nógu lýsandi en endilega látið mig vita ef þetta er ekki nógu skýrt :)

--------------------------------------------------------------------------------------------------
Viðbót 15.01.12

Hér má svo sjá sjalið sem ég heklaði úr Kunstgarninu:
http://www.fondrari.blogspot.com/2011/04/krokodilasjali-mitt.html

Ég notaði fíngert garn og heklunál nr. 5 og sjalið mætti alls ekki vera þykkara fyrir minn smekk :)

8 comments:

Ása Hildur sagði...

Frábært einmitt það sem ég er að reyna að gera ;-)
en það vantar inn mynd 5-6-7-11 og 13!!!
kv. Ása Hildur

Ólöf Lilja Eyþórsdóttir sagði...

Það er skrýtið. Allar myndirnar sjást hjá mér... hins vegar tók ég eftir að mynd nr. 13 var vitlaus og er búin að skipta henni út.

Endilega láttu mig vita ef þú sérð þær ekki enn... og svo væri gaman að vita hvort að einhver skilur þessar leiðbeiningar mínar :)

Thuri sagði...

Æðislegar leiðbeiningar :) og flott blog :)

Ólöf Lilja sagði...

Takk fyrir það :)

loa sagði...

VÁ !!! frábært,varð ekki lítið ánægð að finna þetta ...kærar þakkir :)

Tora´s Vintage Dream sagði...

Snillingur ertu kona :) er einmitt búin að vera að horfa á myndbönd og skildi það svo sem alveg, en var samt í vafa með ef ég vildi gera sjal, á nefnilega eins og þú Kunstgarn og vissi ekki alveg hvernig átti að byrja. Þannig að kærar þakkir fyrir að deila þessu með okkur. ATH Fann þig á facebook hahaha

Handavinnan min. sagði...

Ég er að prufa þetta hekl, búin með fyrsta lauf,og fyrra laufið í annari röð. Festi ég niður á milli laufanna?

Ólöf Lilja Eyþórsdóttir sagði...

Nei ég hekla stuðlana sem ég geri á mynd 14 bara utan um

Skrifa ummæli